Jæja, þá er maður mættur í vinnuna… meira að segja fyrir tæpum klukkutíma síðan.. ég er svo dugleg, ég veit..og afhverju telst það að vera dugnaður að mæta í vinnuna kl korter í 9?.. jú það er nefninlega þannig að ég er í svo dásamlegri vinnu að ég get mætt þegar ég vil þannig að tæknilega séð get ég sofið til 10 og mætt svo.. en hvað geri ég.. græja strákana í skólann, græja mig svo í vinnuna, án þess að leggja mig aftur, og er svo mætt snemma .. þá finnst mér ég dugleg!!!.. Nennti ekki að setja .Net inn á vélina mína í gær, í staðin prófaði ég svolítið sem ég hef ekki gert mjög lengi og það var að búa til kóða á blaði.. skrifaði hann í stílabók með blýanti, tók svo blaðið með mér í vinnuna og því næsta mál á dagskránni er að hamra þetta inn í klasann minn og ýta á build og sjá hvað gerist.. Og hvað er málið með hana Maxine?? og mikið djöfull fer hún Amy eitthvað í taugarnar á mér.. er mikið að spá í að sleppa því að horfa á þetta bull næsta þriðjudag og fara bara upp í rúm með bók í staðinn.. eins og mig langaði að gera í gær þegar ég var að glápa á þetta rugl.. svo er nú reyndar varla orðið horfandi í S1 fyrir auglýsingum… Sem betur fer get ég horft á RUV í kvöld!
-
Nýlegar færslur
Nýlegar athugasemdir
Heiða Björk um Sjúka pastað maður Frú Sigurbjörg um Kássa ofurpesi um Kássa Íris Gíslad um Kássa Íris Gíslad um Heit mexicosúpa fyrir heitar… Færslusafn
- júní 2014
- janúar 2013
- september 2012
- júlí 2012
- apríl 2012
- mars 2012
- október 2011
- september 2011
- ágúst 2011
- júlí 2011
- júní 2011
- maí 2011
- febrúar 2011
- janúar 2011
- nóvember 2010
- október 2010
- júlí 2010
- apríl 2010
- febrúar 2010
- janúar 2010
- október 2009
- september 2009
- júlí 2009
- nóvember 2007
- október 2007
- september 2007
- ágúst 2007
- júlí 2007
- júní 2007
- maí 2007
- apríl 2007
- mars 2007
- febrúar 2007
- janúar 2007
- desember 2006
- nóvember 2006
- október 2006
- september 2006
- ágúst 2006
- júlí 2006
- júní 2006
- maí 2006
- apríl 2006
- mars 2006
- febrúar 2006
- janúar 2006
- desember 2005
- nóvember 2005
- október 2005
- september 2005
- ágúst 2005
- júní 2005
- janúar 2005
Flokkar
Tækni