þokkalega geðveikur leikfimitíminn í gær, tókum svo hrikalega áðí að ég var gjörsamlega uppgefin í gærkvöldi, var alveg búin að ákveða að ég myndi ekki geta hreyft mig fyrir harðsperrum í dag, var svo viss að mig dreymdi að ég væri með harðsperrur allstaðar í nótt og var alltaf að vakna til að gá hvort þær væru komnar.. ég veit, ég er ekki í lagi.. en allavega, jújú, ég er alveg með smá harðsperrur, sérstaklega í ‘armbeygjunum’ en ég er ekki nærri því eins slæm og ég bjóst við, þannig að ég held alveg að hjólapartýið sé málið í kvöld.. er það ekki annars Heiða?Tók svo öll ummál af mér í gær og það er skemmst frá því að segja að ég er búin að missa einhvern helvítis helling af sentimetrum, mér varð eiginlega nóg um, var ekki alveg að trúa þessum tölum.. alltaf gaman að sjá það svart á hvítu að maður er að ná árangri.. eins og t.d í tímanum í gær, þá bara gat maður gert þessar drulluerfiðu æfingar, var alveg erfitt og allt það en ÉG GAT GERT ÞÆR.. díses hvað þetta er hrikalega skemmtilegt.. bráðum verður maður svo massaður að maður getur ekki talað í síma nema að nota handfrjálsan, eins gott að fara að æfa sig í því að tala eins og kraftakall.. :o)Annars er bara kominn föstudagur, ekkert planað um helgina nema að hafa það gott, taka til og svona þetta hefðbundna.. kannski ég bjóði Heiðu minni í hádegismat á morgun eftir leikfimi.. nýbakaðar bollur eða eitthvað.. verð örugglega besta stórasystir í heimi ef ég geri það..
-
Nýlegar færslur
Nýlegar athugasemdir
Heiða Björk um Sjúka pastað maður Frú Sigurbjörg um Kássa ofurpesi um Kássa Íris Gíslad um Kássa Íris Gíslad um Heit mexicosúpa fyrir heitar… Færslusafn
- júní 2014
- janúar 2013
- september 2012
- júlí 2012
- apríl 2012
- mars 2012
- október 2011
- september 2011
- ágúst 2011
- júlí 2011
- júní 2011
- maí 2011
- febrúar 2011
- janúar 2011
- nóvember 2010
- október 2010
- júlí 2010
- apríl 2010
- febrúar 2010
- janúar 2010
- október 2009
- september 2009
- júlí 2009
- nóvember 2007
- október 2007
- september 2007
- ágúst 2007
- júlí 2007
- júní 2007
- maí 2007
- apríl 2007
- mars 2007
- febrúar 2007
- janúar 2007
- desember 2006
- nóvember 2006
- október 2006
- september 2006
- ágúst 2006
- júlí 2006
- júní 2006
- maí 2006
- apríl 2006
- mars 2006
- febrúar 2006
- janúar 2006
- desember 2005
- nóvember 2005
- október 2005
- september 2005
- ágúst 2005
- júní 2005
- janúar 2005
Flokkar
Tækni