… þá er dadda mín orðin fín frú.. brúðkaupið var æði, Dadda var æði, Binni var æði, krakkarnir voru æði, við systurnar vorum æði (auðvitað), veislan var æði.. bara geggjað brúðkaup!Ég var veislustjóri og ég held að það hafi bara tekist alveg þokkalega, mér hafa allavega ekki borist neinar kvartanir ennþá.. ég hélt líka smá ræðu og svo sungum við systurnar smá svona texta sem við sömdum um brúðhjónin og það tókst bara vel, enda erum við nottla langflottastar í verden.. svo þegar skemmtiatriði og maturinn var búinn þá tók við þetta massa sveitaball þar sem hljómsveitin Þjóðviljinn lék fyrir dansi á pallinum, það var vægast sagt svaka stuð, manni var snúið í endalausa hringi og ég tel mig nú bara vera heppna að hafa sloppið lifandi frá því.. shjæse.. svo þegar hljómsveitin hætti, fóru bara allir inn og fóru að dansa við rapp sem menn og konur hentu fram bara si svona.. þetta var bara geggjað stuð.. spurning um að dobbla brúðhjónin til að halda aftur svona brúðkaup.. bara endurnýja heitin og halda aftur svona massa veislu, kannski bara hægt að gera það reglulega annað hvert ár.. :o) Fór í ræktina í gær, í pallatíma til mána.. sjitt hvað ég er ótrúlega eitthvað taktlaus.. rútínan hjá honum var frekar svona í erfiðari kanntinum og ég bara einn stór flækjufótur :o) .. ég t.d. gat ekki tyllt á pallinn og klappað án þess að ruglast heheheeh ómg, hvað ég er langflottust í þessu.. en hann ætlar að vera með sömu rútínuna á morgun og kannski bara næ ég henni þá.. þokkalega sem ég er langflottasti flækjufóturinn .. einhver þarf að vera í því eða hvað ?? Birkir, (Burg, með enskum hreim, hehe ) er að fara í sumarbúiðir skáta við úlfljótsvatn á morgun og verður í viku.. tilhlökkunin hjá honum er mikil, held að hann sé búinn að hlakka til að fara síðan við sóttum í sumarbúðirnar fyrir ári síðan.. Þá verðum við aftur bara þrjú, vorum þrjú í tvær vikur á meðan ET var á Hornafirði.. hálf skrítið eitthvað að börnin séu orðin svo stór að maður er farinn að senda þau að heiman heilu og hálfu vikurnar.. Annars er það bara vinnan á fullu, ég þarf að klára ýmislegt áður en ég fer í frí .. þannig að ég er bara nokkuð bissí sko..
-
Nýlegar færslur
Nýlegar athugasemdir
Heiða Björk um Sjúka pastað maður Frú Sigurbjörg um Kássa ofurpesi um Kássa Íris Gíslad um Kássa Íris Gíslad um Heit mexicosúpa fyrir heitar… Færslusafn
- júní 2014
- janúar 2013
- september 2012
- júlí 2012
- apríl 2012
- mars 2012
- október 2011
- september 2011
- ágúst 2011
- júlí 2011
- júní 2011
- maí 2011
- febrúar 2011
- janúar 2011
- nóvember 2010
- október 2010
- júlí 2010
- apríl 2010
- febrúar 2010
- janúar 2010
- október 2009
- september 2009
- júlí 2009
- nóvember 2007
- október 2007
- september 2007
- ágúst 2007
- júlí 2007
- júní 2007
- maí 2007
- apríl 2007
- mars 2007
- febrúar 2007
- janúar 2007
- desember 2006
- nóvember 2006
- október 2006
- september 2006
- ágúst 2006
- júlí 2006
- júní 2006
- maí 2006
- apríl 2006
- mars 2006
- febrúar 2006
- janúar 2006
- desember 2005
- nóvember 2005
- október 2005
- september 2005
- ágúst 2005
- júní 2005
- janúar 2005
Flokkar
Tækni