Frunsur…

… eru djöfulsins!! er með eina sem skartar sínu fegursta núna, í vinstri nösinni.. mjög hressandi. Er búin að vera heima alla helgina með hausverk og frunsu og meððí. Og eins og það væri ekki nóg, þá fer þessi frunsa svo á sálina í mér að ég er geðvond og pirruð með eindæmum.
Samt get ég ekki kvartað, sit núna með vömbina fulla af lasagne, nýbökuðu brauði og rauðvíni og í sumarfríi alla næstu viku, ekki kvartar maður yfir því! Ætlum að skreppa í fögru Nesjasveit eftir nokkra daga, vonandi eftir færri en fleiri, fer allt eftir Heimsmeistaranum og hvenær hann kemst í fri. Ég þrái Nesin, mig dreymir þau á nóttunni og allskonar.. maður er nottla ekki í lagi, verandi með heimþrá, komin á fimmtugsaldurinn!
Og í Nesjunum, þá ætla ég að fá brjóstahaldarafar!! held reyndar að það sé spáð rigningu..

Um kollatjorva

kona, mamma, kærasta, systir, dóttir, frænka, tölvunarfræðingur, kórkona.. allskonar..
Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.

5var við Frunsur…

  1. Svanfríður sagði:

    Gaman að lesa blogg eftir þig..ég hreinlega hélt að þú værir hætt. Fari frunsan og veri og góða skemmtun á bernskuslóðum:)

  2. kollatjorva sagði:

    ekki hætt.. en svona rólegri í tíðinni heldur en í denn og komin á nýjan stað :) Kæra kveðjur til þín elsku Svanfríður

  3. Íris Gíslad sagði:

    Vona að þú losnir við frunsuna sem fyrst ertu búin að prófa Jöklamús á fyrirbærið?

    • kollatjorva sagði:

      æ, það er svo ógeðslegt eitthvað að setja krem á þetta þar sem þetta er inní nefinu .. þarafleiðandi hef ég ekki prófað nein krem, ég er bara nagli og þoli þetta.. eða svona, þoli þetta með tuði og pirringi :)

  4. Nesin eru æði.. farðu þangað eins fljótt og þú getur og geðvonskan blæs af þér um leið og þú ert komin yfir hossubrúna :)

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s